Íslenska útgáfan er lagalega bindandi.The Icelandic version is the legally binding one.Юридично обов'язковою є версія ісландською мовою.

Skilmálar um notkun námsumhverfis

Uppfært 2026-08-19

Samantekt

Skilmálar um notkun námsumhverfisins app.mennto.is, vefsvæðisins mennto.is og menntō appsins.

  • Rekstraraðili: Ragnar Snær ehf., kt. 480120-1590, Sóltúni 26, 105 Reykjavík (hallo@mennto.is).
  • Aldurstakmark: Lágmark 16 ára (forráðamaður samþykkir fyrir 16–17 ára).
  • Iðrunarréttur og forföll: Lögboðinn 14 daga iðrunarréttur; full endurgreiðsla fyrir upphaf námskeiðs.
  • Lög og varnarþing: Íslensk lög, Héraðsdómur Reykjavíkur.

1. Hver við erum

Námsumhverfið app.mennto.is, vefsvæðið mennto.is og menntō appið eru rekin af Ragnari Snæ ehf., kt. 480120-1590, Sóltúni 26, 105 Reykjavík, fræðsluaðila („menntō“, „við“, „okkur“).

Samskipti: hallo@mennto.is.

2. Um skilmála þessa

Skilmálar þessir gilda um notkun þína á námsumhverfi menntō. Með því að samþykkja þá við innskráningu — og með því að nota námsumhverfið — samþykkir þú að vera bundin(n) af þeim. Ásamt persónuverndarstefnu og þeirri námskeiðslýsingu sem þú fékkst við skráningu mynda skilmálar þessir heildarsamning milli aðila.

Ef þú samþykkir ekki skilmálana getur þú ekki notað námsumhverfið; vinsamlegast hafðu samband við okkur svo hægt sé að finna aðra lausn á námsþátttöku eða fella niður skráningu.

Skilmálar þessir eru gefnir út á íslensku, ensku og úkraínsku. Verði misræmi milli útgáfa ræður íslenski textinn.

3. Hverjir mega nota námsumhverfið

Nemendur verða að vera að lágmarki 16 ára til að stofna aðgang og stunda nám. Sé nemandi 16 eða 17 ára (ólögráða nemandi) þarf foreldri eða forráðamaður að samþykkja skráningu, skilmála þessa og greiðsluskuldbindingar fyrir hans hönd.

Aðgangur að námsumhverfinu er stranglega persónulegur: þér er óheimilt að deila aðgangsorðum þínum eða leyfa öðrum að nota aðganginn þinn. Þú berð fulla ábyrgð á öllu sem gert er undir þínum aðgangi þar til þú hefur tilkynnt okkur um að öryggi hans hafi verið ógnað.

Hægt er að skrá sig inn með lykilorði, passkey (veflykli), Google-aðgangi eða Telegram-aðgangi. Hvaða leið sem valin er berð þú ábyrgð á að tryggja öryggi hennar. Tilkynntu tafarlaust á hallo@mennto.is ef þig grunar að óviðkomandi aðili hafi komist yfir aðgangsupplýsingar þínar.

4. Skráning, námsgjöld, forföll og endurgreiðslur

Námskeið eru afhent samkvæmt einu af fjórum eftirfarandi fyrirkomulögum, eftir því hvernig skráningu þinni var háttað:

  • Bein skráning einstaklinga (og endurgreiðsla úr styrktarsjóðum). Námsgjöld eru birt á vefsíðu okkar eða skráningarformum. Rafræn krafa í netbanka er stofnuð í gegnum bókhaldskerfið Payday með 14 daga gjaldfresti eða fyrir fyrstu áætluðu kennslustund. Fræðsluþjónusta er undanþegin virðisaukaskatti skv. 3. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Reikningar og greiðslukvittanir eru sundurliðaðar og uppfylla kröfur starfsmenntasjóða stéttarfélaga, Vinnumálastofnunar (VMST), VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs og fræðslustyrkja sveitarfélaga. Réttur til styrkja: Réttur til endurgreiðslu eða styrkja byggir eingöngu á persónulegri aðild nemanda, áunnum réttindum í stéttarfélagi eða samþykki viðkomandi stofnunar (s.s. VMST eða VIRK); við getum hvorki sannreynt né ábyrgst styrkveitingar og hver nemandi ber einn fulla ábyrgð á því að kanna styrkrétt sinn hjá viðkomandi sjóði fyrir eða við skráningu.
  • Bein stofnanafjármögnun (Vinnumálastofnun, VIRK, opinberar stofnanir). Þegar nám er fjármagnað beint af Vinnumálastofnun, VIRK Starfsendurhæfingarsjóði eða öðrum opinberum aðilum samkvæmt samningi, fara greiðslur fram beint milli viðkomandi stofnunar og Ragnars Snæs ehf. Nemandi fær ekki reikning í eigin nafni, að því gefnu að hann uppfylli mætingar-, þátttöku- og námskröfur stofnunarinnar.
  • Samstarf við fræðsluaðila og símenntunarmiðstöðvar (fræðsluaðilar og símenntunarmiðstöðvar). Þegar nám fer fram í samstarfi við aðra fræðsluaðila eða símenntunarmiðstöð gilda skráningar- og greiðsluskilmálar viðkomandi samstarfsaðila. Samstarfsaðilinn afhendir okkur nemendalista og við sjáum um framkvæmd kennslunnar í námsumhverfinu.
  • Vinnustaðanám og fyrirtækjanámskeið (fyrirtækjaþjónusta). Þegar vinnuveitandi kaupir námskeið fyrir starfsfólk sitt afhendir fyrirtækið þátttakendalista og greiðir reikning námskeiðsins beint til Ragnars Snæs ehf. Starfsfólk er ekki krafið um greiðslu.

Forföll og endurgreiðslur (við beina skráningu einstaklinga):

  • Lögboðinn 14 daga iðrunarréttur: Samkvæmt VI. kafla laga nr. 16/2016 um neytendasamninga hefur þú 14 daga frá skráningardegi til að falla frá námssamningi með skriflegri tilkynningu á hallo@mennto.is.
  • Fyrir upphaf námskeiðs: Afskráir þú þig fyrir fyrstu áætluðu kennslustund færð þú námsgjaldið endurgreitt að fullu (100%).
  • Eftir að námskeið er hafið innan 14 daga frestsins: Hefjist kennsla eða opnist aðgangur að námsefni innan 14 daga iðrunarfrestsins samkvæmt sérstakri ósk þinni, og fellur þú síðan frá samningi innan frestsins, greiðir þú hlutfall af heildarverði í samræmi við þá kennslu sem þegar hefur farið fram og afgangurinn er endurgreiddur, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 16/2016. Skráning ein og sér telst ekki slík ósk: hafir þú ekki óskað sérstaklega eftir því að kennsla hæfist innan frestsins ber þér enginn kostnaður af þeirri kennslu og endurgreiðslan er full, sbr. b-lið 2. mgr. sömu greinar.
  • Framkvæmd endurgreiðslu: Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning þín um að falla frá samningi berst okkur, með sama greiðslumiðli og þú notaðir nema þú samþykkir annað sérstaklega, sbr. 21. gr. laga nr. 16/2016.
  • Að loknum 14 daga fresti: Þegar 14 daga lögboðnum fresti lýkur eru námsgjöld óendurkræf. Komi til óviðráðanlegra forfalla vegna alvarlegra veikinda sem staðfest eru með læknisvottorði getum við boðið upp á inneign eða flutning á námskeið á næstu önn.
  • Niðurfelling af hálfu fræðsluaðila: Sé námskeið fellt niður af hálfu Ragnars Snæs ehf. (t.d. vegna ónógrar þátttöku) eru öll greidd námsgjöld endurgreidd að fullu innan 14 daga.

Greiðsluskilmálar og vanskil: Rafrænar kröfur falla í gjalddaga eins og tilgreint er á kröfunni. Sé krafa ógreidd eftir eindaga áskiljum við okkur rétt til að loka tímabundið fyrir aðgang að námsumhverfinu þar til full greiðsla hefur borist. Komi til vanskila geta fallið á lögboðnir dráttarvextir samkvæmt lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu ásamt lögmætum innheimtukostnaði samkvæmt innheimtulögum nr. 95/2008.

Neitun þriðja aðila um greiðslu: Skrái nemandi sig til náms í þeirri trú að stofnun, sjóður eða vinnuveitandi muni greiða námsgjaldið ber nemandinn ávallt ábyrgð á að kanna og tryggja samþykki fyrir greiðslunni áður en námskeið hefst. Synji eða neiti viðkomandi stofnun eða vinnuveitandi greiðslu (t.d. vegna ónógrar mætingar eða vanefnda á reglum sjóðsins) ber nemandi fulla persónulega ábyrgð á greiðslu námsgjaldsins gagnvart Ragnari Snæ ehf.

Námslokavottorð: Viðurkenningarskjöl og námslokavottorð eru gefin út við lok námskeiðs að uppfylltum kröfum um mætingu og námsárangur (að jafnaði lágmark 75% virka mætingu í rauntímakennslu og skil á tilskildum verkefnum), að því tilskildu að öll námsgjöld hafi verið greidd að fullu.

5. Hvernig má nota námsumhverfið

Námsumhverfið er ætlað til eigin náms og persónulegra nota. Þú berð sjálf(ur) ábyrgð á að hafa yfir að ráða samhæfum tölvubúnaði, virkum hljóð- og myndbúnaði (hljóðnema og vefmyndavél fyrir gagnvirkar kennslustundir; það að eiga vefmyndavél skyldar þig ekki til að kveikja á henni meðan kennslustund er tekin upp, sbr. 6. gr.) og stöðugri nettengingu sem nauðsynleg er til námsþátttöku.

Þér er óheimilt að:

  • deila, birta opinberlega, útvarpa eða endurselja námsefni — sjá 6. gr.,
  • taka upp, hlaða niður til dreifingar, deila eða birta opinberlega upptökur úr kennslustundum eða samskipti samnemenda,
  • setja, hlaða inn eða mata námsefni, texta eða hljóðritanir úr kennslustundum inn í opinber gervigreindarkerfi eða sjálfvirk forrit (sköfur),
  • hlaða inn ólögmætu efni eða efni sem þú hefur ekki heimild til að deila,
  • áreita, hóta eða sýna öðrum nemendum eða kennurum ótilhlýðilega hegðun í námsumhverfinu eða í skilaboðum,
  • reyna að brjótast inn í kerfið, ofhlaða það eða afla óheimils aðgangs að gögnum annarra,
  • beita sjálfvirkum forritum til að sækja efni í miklu magni,
  • villa á þér heimildir eða koma fram undir fölsku nafni.

Brjótir þú reglur þessar getum við lokað aðgangi þínum. Sé um minniháttar brot að ræða veitum við áminningu fyrst; sé brotið alvarlegt — einkum áreitni gagnvart samnemendum, höfundaréttarbrot, óheimil dreifing á upptökum úr tímum eða námsvik — getum við lokað aðgangi tafarlaust og vísað nemanda úr námi. Verði nemanda vísað úr námi vegna alvarlegra brota eru námsgjöld ekki endurgreidd og námslokavottorð eru ekki gefin út.

6. Námsefni, upptökur úr kennslustundum og verk nemenda

Okkar efni. Námsefni — textar, hljóð- og myndupptökur, æfingar, myndefni, hugbúnaður og útskriftir úr tímum — er eign Ragnars Snæs ehf. (starfandi undir heitinu menntō) eða leyfisveitenda okkar. Þú færð persónulegt, óframseljanlegt og afturkallanlegt afnotaleyfi til að nálgast og nota efnið eingöngu til eigin náms á meðan á námskeiðinu stendur. Óheimilt er að endurbirta efnið, selja, útvarpa, birta á netinu eða afhenda óviðkomandi aðilum. Óheimilt er að hlaða námsefni inn í opinber gervigreindartól eða sjálfvirk forrit.

Kennslustundaupptökur og friðhelgi samnemenda. Rauntímakennslustundir á netinu kunna að vera hljóð- og myndritaðar svo nemendur í viðkomandi námshópi geti rifjað upp efnið. Upptökurnar fanga raddir, myndstreymi, spurningar og þátttöku kennara og samnemenda.

  • Þú mátt sitja kennslustund sem tekin er upp með slökkt á myndavél og hljóðnema og setja spurningar þínar í spjallið. Námsmat þitt byggist ekki á því að koma fram í upptöku, og þú mátt andmæla upptöku sem nær til þín skv. 3. gr. persónuverndarstefnunnar.
  • Þú mátt aðeins skoða upptökur til eigin náms innan viðkomandi námskeiðs.
  • Stranglega er bannað að hlaða niður til dreifingar, taka upp skjá, deila, áframsenda eða birta upptökur úr kennslustundum opinberlega (í heild eða að hluta, á YouTube, TikTok, Telegram, samfélagsmiðlum eða annars staðar).
  • Óheimil dreifing upptaka telst alvarlegt brot á höfundalögum nr. 73/1972 og beint brot á lögvörðum rétti samnemenda þinna til friðhelgi einkalífs og persónuverndar (lög nr. 90/2018 og almenn hegningarlög nr. 19/1940).
  • Hvers kyns brot hefur í för með sér tafarlausa brottvísun úr námi án endurgreiðslu, bótaskyldu vegna höfundaréttar- og persónuverndartjóns og eftir atvikum tilkynningu til lögreglu.

Þitt efni. Það sem þú skrifar og skilar inn — verkefni, umræðufærslur, persónulegar hljóðupptökur — er þín eign. Þú veitir okkur leyfi til að vista það, sýna kennurum þínum og öðrum nemendum þar sem verkefnið er ætlað til samvinnu (t.d. í spjallborði eða hópverkefni) og halda því til haga sem hluta af námsferli eins og tilgreint er í 6. gr. persónuverndarstefnunnar. Við notum aldrei verk nemenda í markaðssetningu án fyrirfram samþykkis.

7. Gervigreind og fræðileg heilindi

Námsumhverfið styður innbyggða gervigreindartengingu fyrir kennara við Claude (Anthropic PBC) og Gemini (Google), og þessi verkfæri eru eingöngu aðgengileg kennurum. Nemendur hafa ekki aðgang að gervigreindartólum í sínu námsviðmóti og ekkert sem þú skrifar í námsumhverfinu er sent til gervigreindarveitna — sjá 4. gr. persónuverndarstefnunnar.

Notkun gervigreindar við úrlausn verkefna: Öll námsverkefni sem nemandi skilar skulu vera hans eigið sjálfstæða hugverk. Nemendum ber að fylgja fyrirmælum kennara um hvort og hvernig heimilt sé að nýta gervigreind við úrlausn tiltekinna verkefna. Þar sem gervigreind er heimiluð sem hjálpartæki í námi ber nemanda ávallt að geta heimilda og gera skýra grein fyrir notkun hennar (heimildaskráning). Að skila texta, þýðingum eða svörum frá gervigreind sem eigin vinnu þar sem krafist er sjálfstæðrar textagerðar telst námsvik (agabrot) og er tekið á því samkvæmt skólareglum.

8. Skilaboð og tilkynningar

Við sendum þér nauðsynleg skilaboð sem tengjast náminu: stundatöflubreytingar, áminningar, námsmat, reikninga og greiðslukvittanir, og skilaboð frá kennurum. Þessi skilaboð berast með tölvupósti, í gegnum skilaboðakerfi námsumhverfisins, með ýtiboðum í appinu og með SMS á símanúmerið þitt; ef þú hefur tengst Telegram geta þau einnig borist þar.

Þú berð ábyrgð á því að skráð netfang og símanúmer séu ávallt rétt og virk. Opinberar tilkynningar og greiðsluerindi sem send eru á uppgefin tengiliðagögn teljast komin til skila.

Skilaboð vegna námsins eru óaðskiljanlegur hluti af þjónustunni og ekki er hægt að afþakka þau á meðan á námi stendur. Kynningarefni um önnur námskeið sendum við einungis ef þú hefur veitt samþykki þitt fyrir því, og þú getur hvenær sem er afturkallað það samþykki á prófílsíðu þinni eða með tölvupósti á hallo@mennto.is.

9. Menntō-appið

Menntō-appið fyrir snjalltæki er nú í prófunarútgáfu (beta). Það kann að innihalda villur, þjónusta getur rofnað og virkni getur breyst. Vefútgáfan á app.mennto.is er aðalvettvangur þjónustunnar; appið er veitt til viðbótar. Notkun appsins hefur engin áhrif á réttindi þín skv. 4. gr.

10. Aðgengi, viðhald og óviðráðanleg atvik

Við leitumst við að halda námsumhverfinu aðgengilegu á hverjum tíma en ábyrgjumst ekki órofna þjónustu. Við framkvæmum reglubundið viðhald, stundum með skömmum fyrirvara þegar öryggi krefst þess. Við getum breytt, bætt við eða fellt niður eiginleika kerfisins. Ef breyting rýrir verulega þá þjónustu sem þú greiddir fyrir skaltu hafa samband við okkur og við munum finna sanngjarna lausn.

Við berum enga ábyrgð á truflunum eða rofi á þjónustu sem stafar af óviðráðanlegum atvikum (force majeure), þar á meðal náttúruhamförum, óveðri, eldgosum og jarðhræringum, rafmagnsleysi, bilunum eða truflunum hjá fjarskiptafyrirtækjum eða skýjahýsingaraðilum, vinnudeilum og verkföllum eða netárásum sem ekki var unnt að koma í veg fyrir með venjulegum öryggisráðstöfunum.

11. Lok samnings

Þú getur hætt notkun námsumhverfisins hvenær sem er og óskað eftir að aðgangi þínum verði lokað með því að senda póst á hallo@mennto.is. Við varðveitum þau gögn sem okkur er skylt að varðveita samkvæmt lögum — sjá 6. gr. persónuverndarstefnunnar — en eyðum öðrum gögnum.

Við getum lokað aðgangi þínum ef þú brýtur verulega gegn skilmálum þessum eða þegar námi þínu lýkur. Verði aðgangi lokað vegna alvarlegra brota fellur niður réttur til endurgreiðslu námsgjalda og útgáfu námslokavottorða.

12. Bótaskylda og takmörkun ábyrgðar

Við berum skaðabótaábyrgð á beinu tjóni sem við völdum með ásetningi (ásetningur) eða stórfelldu gáleysi (stórfellt gáleysi), sem og öðru tjóni sem óheimilt er að takmarka samkvæmt ófrávíkjanlegum ákvæðum íslenskra laga. Við berum ekki ábyrgð á gögnum sem þú tókst ekki afrit af, truflunum af völdum þriðju aðila utan okkar yfirráða eða á óbeinu og afleiddu tjóni (óbeint tjón, s.s. tekjutapi eða glötuðum atvinnutækifærum).

Heildarskaðabótaábyrgð okkar gagnvart þér vegna krafna sem tengjast námskeiðinu eða notkun námsumhverfisins skal aldrei vera hærri en sú fjárhæð sem nemandi greiddi fyrir viðkomandi námskeið. Ekkert í skilmálum þessum takmarkar lögvarin réttindi neytenda samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 eða öðrum ófrávíkjanlegum reglum neytendaréttar.

13. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli aðila sem ekki tekst að leysa með samkomulagi skal málinu vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur. Sem neytandi getur þú leitað réttar þíns fyrir dómstólum eða, að því marki sem lögsaga hennar tekur til samninga af þessu tagi, til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa samkvæmt lögum nr. 81/2019.

14. Breytingar á skilmálum

Skilmálar þessir eru útgáfustýrðir og ber hver útgáfa dagsetningu og útgáfunúmer. Þegar við gerum efnislegar breytingar biður námsumhverfið þig um að samþykkja nýja útgáfu næst þegar þú skráir þig inn, og kerfið skráir hvaða útgáfu þú samþykktir og hvenær. Samþykkir þú ekki nýja útgáfu getur þú ekki haldið áfram notkun námsumhverfisins og munum við gera upp námsþátttöku þína með beinum hætti.

15. Samskiptaupplýsingar

Ragnar Snær ehf., kt. 480120-1590, Sóltún 26, 105 Reykjavík, Ísland, hallo@mennto.is

Terms of Use

Updated 2026-08-19

Summary

Terms of use for the app.mennto.is learning environment, the mennto.is website and the menntō mobile app.

  • Operator: Ragnar Snær ehf., kt. 480120-1590, Sóltún 26, 105 Reykjavík (hallo@mennto.is).
  • Age requirement: Minimum 16 years (parent or guardian consent required for ages 16–17).
  • Cancellation and refunds: Statutory 14-day right of withdrawal; 100% refund before the course starts.
  • Governing law: Icelandic law, Héraðsdómur Reykjavíkur.

1. Who we are

The learning platform app.mennto.is, the site mennto.is and the menntō mobile app are operated by Ragnar Snær ehf., kt. 480120-1590, Sóltún 26, 105 Reykjavík, Iceland, an educational services provider ("menntō", "we", "us").

Contact: hallo@mennto.is.

2. What these terms are

These terms govern your use of the platform. By accepting them when you sign in — and by using the platform — you agree to them. Together with the Privacy Policy and the course description you were given when you enrolled, they form the agreement between us.

If you do not accept them, you cannot use the platform; tell us and we will arrange your course participation another way or end the enrolment.

These terms are published in Icelandic, English and Ukrainian. If the versions differ, the Icelandic text prevails.

3. Who may use it

You must be at least 16 years old to hold an account. If you are 16 or 17 years old (ólögráða nemandi), your parent or legal guardian (forráðamaður) must approve your enrolment and agree to these terms and payment obligations on your behalf.

Accounts are strictly personal: you may not share your credentials or let anyone else use your account. You are responsible for maintaining the confidentiality of your sign-in credentials and for what happens under your account until you tell us it has been compromised.

You may sign in with a password, a passkey, a Google account or a Telegram account. Whichever you choose, keep it secure. Tell us at hallo@mennto.is as soon as you suspect someone else has access.

4. Enrolment, fees and cancellation

Courses are delivered under one of four arrangements, depending on how you were enrolled:

  • Direct individual enrolment (and grant reimbursement). Course fees are published on our website or registration forms. We issue an electronic invoice (krafa í netbanka) via our accounting system, Payday, payable within 14 days or before the first scheduled lesson. Educational services are exempt from VAT pursuant to Article 2(3)(3) of the Icelandic VAT Act No. 50/1988 (lög um virðisaukaskatt). Invoices and receipts are itemised and formatted to meet standard criteria for students applying for vocational training grants or reimbursements from trade unions (starfsmenntasjóðir stéttarfélaga), Vinnumálastofnun (VMST), vocational rehabilitation funds (VIRK Starfsendurhæfingarsjóður), or municipal educational grants. Grant entitlement: Eligibility for any union reimbursement, rehabilitation grant, or public subsidy depends strictly on your individual membership, accumulated fund rights (áunnin réttindi), or personal standing with the relevant funding body (such as your trade union, VMST, or VIRK); we cannot verify or guarantee grant approvals, and each student is solely responsible for verifying their grant entitlement directly with their respective fund before or upon enrolment.
  • Direct institutional funding (Vinnumálastofnun, VIRK, public agencies). Where your course is funded directly by the Directorate of Labour (Vinnumálastofnun), VIRK Starfsendurhæfingarsjóður, or another public agency under an institutional agreement, payment is settled directly between that funding body and Ragnar Snær ehf. You are not personally invoiced, provided you meet the attendance, participation, and course completion conditions required by that body.
  • Partner educational providers and lifelong learning centres (fræðsluaðilar og símenntunarmiðstöðvar). Where you participate through a partner educational institution or continuing education centre, your registration and financial terms are governed by your agreement with that institution. The partner institution provides the student roster to us, and we deliver the teaching on the platform.
  • Corporate and employer-sponsored training (vinnustaðanám / fyrirtækjanámskeið). Where an employer commissions training for its employees, the employer provides the participant list and settles the course invoice directly with Ragnar Snær ehf. Participating employees are not personally charged.

Cancellation and refunds (for direct individual enrolments):

  • Statutory 14-day right of withdrawal: Pursuant to Chapter VI of the Icelandic Consumer Contracts Act No. 16/2016 (lög um neytendasamninga), you have 14 days from the date of registration to withdraw from your educational agreement by giving written notice to hallo@mennto.is.
  • Before the course starts: If you cancel your enrolment before the first scheduled lesson, you will receive a full 100% refund of course fees paid.
  • After teaching commences within the 14-day window: Where course access or live lessons commence within the 14-day statutory withdrawal period at your express request, and you exercise your right of withdrawal within that window, you pay a proportion of the total price corresponding to the instruction delivered up to your notice, and the balance is refunded (Art. 23(1) of Act No. 16/2016). Enrolment alone does not count as such a request: if you did not expressly ask for teaching to begin within the period, you bear no cost for that teaching and the refund is full (Art. 23(2)(b) of the same Act).
  • How refunds are made: We refund without undue delay and no later than 14 days after your notice of withdrawal reaches us, using the same means of payment you used, unless you expressly agree otherwise (Art. 21 of Act No. 16/2016).
  • After the statutory 14-day window: Once the statutory 14-day withdrawal period has elapsed, course fees are non-refundable. If you are prevented from continuing due to illness or serious unforeseen events supported by a medical certificate, we may offer a pro-rata credit or transfer to a subsequent term.
  • Cancellation by the provider: If a course is cancelled by Ragnar Snær ehf. (for example due to insufficient enrolment), all fees paid are refunded in full within 14 days.

Payment terms and default: Electronic invoices (kröfur) fall due as stated on the claim. If an invoice remains unpaid past its final due date (eindagi), access to the course and platform may be suspended until settlement in full. Overdue claims may incur statutory default interest (dráttarvextir) pursuant to Act No. 38/2001 and statutory debt collection costs pursuant to the Debt Collection Act No. 95/2008 (innheimtulög).

Third-party payment refusal: Where a student enrols under the expectation that an external fund, institution, or employer will settle the course fee, the student is responsible for verifying and securing their sponsorship before classes begin. If the sponsoring body denies, revokes, or refuses payment for any reason (such as attendance falling below fund thresholds or unfulfilled funding criteria), the student remains personally liable to Ragnar Snær ehf. for the full course fee.

Course certificates: Certificates of completion (námslokavottorð) are issued upon fulfilling the course attendance and assessment requirements (typically a minimum of 75% attendance in live sessions and completion of required coursework), provided all associated course fees have been settled in full.

5. How you may use the platform

Use it for your own studies. You are responsible for ensuring you have compatible devices, working audio/video equipment (microphone and camera for interactive lessons), and a stable internet connection required to access the platform. Having a camera does not oblige you to switch it on while a class is being recorded — see section 6.

You may not:

  • share, publish, broadcast or resell course materials — see section 6,
  • record, download for distribution, share or publicly post classroom recordings or peer interactions,
  • input, upload or feed course materials, lesson transcripts, or recordings into public third-party AI models or automated scrapers,
  • upload unlawful material, or material you have no right to share,
  • harass, threaten or abuse other students or teachers, on the platform or in its messaging,
  • try to break, overload or gain unauthorised access to the platform, or to read another person's data,
  • use automated tools to download course content in bulk,
  • impersonate another person.

If you break these rules we may suspend your access. Where the breach is minor we will ask you to stop first; where it is serious — in particular harassment of other students, copyright infringement, unauthorized sharing of class recordings, or academic fraud — we may terminate your enrolment immediately. In the event of termination for serious breach, no refund is granted and no course certificate will be issued.

6. Course materials, classroom recordings, and your own work

Ours. Course materials — texts, recordings, exercises, images, software, and lesson transcripts — belong to Ragnar Snær ehf. (operating as menntō) or to those who licensed them to us. You get a personal, non-transferable, revocable licence to access and use them exclusively for your own personal studies while you are enrolled. You may not republish, sell, broadcast, post online, or pass them to people who are not enrolled. You may not upload or process course materials through public AI tools or scrapers.

Classroom recordings and peer privacy. Live online classes may be recorded to allow enrolled classmates in that specific course cohort to review the lesson. These recordings capture the voices, video feeds, questions, and participation of teachers and fellow students.

  • You may attend a recorded class with your camera and microphone off and ask your questions in the chat. Nothing in your assessment depends on appearing in a recording, and you may object to a recording that captures you under section 3 of the Privacy Policy.
  • You may access recordings solely for your own study within that course.
  • Downloading for distribution, screen-recording, sharing, forwarding, or publicly posting classroom recordings (in whole or in part, on YouTube, TikTok, Telegram, social media or elsewhere) is strictly prohibited.
  • Unauthorized distribution of recordings is a severe violation of Icelandic copyright law (höfundalög nr. 73/1972) and a direct breach of your fellow students' statutory right to privacy and image protection (lög nr. 90/2018 and almenn hegningarlög nr. 19/1940).
  • Any breach will result in immediate termination of your enrolment without refund, civil liability for copyright and privacy damages, and potential referral to law enforcement.

Yours. What you write and submit — assignments, forum posts, personal recordings — stays yours. You give us permission to store it, show it to your teachers and to other students where the activity is meant to be shared (a forum, a group task), and to keep it as part of the course record for as long as section 6 of the Privacy Policy says. We do not use your work for marketing without asking you first.

7. AI features and academic integrity

The platform can call AI services from Anthropic and Google, and those tools are available to teachers only. You have no AI features in your account, and nothing you write in the platform is sent to an AI provider — see section 4 of the Privacy Policy.

Use of AI in coursework: Academic work you submit must be your own authentic work. You must follow teacher instructions regarding whether and how AI assistance is permitted for any specific assignment. Where AI tools are authorized as a study aid, you must clearly cite and disclose their use (heimildaskráning). Submitting AI-generated text or translations as your own unassisted work where independent writing is required constitutes academic misconduct and will result in disciplinary action in accordance with course rules.

8. Messages we send you

We send you what your course requires: schedule changes, reminders, results, invoices and payment receipts, messages from teachers. These come by email, in-platform message, push notification and, where you gave us your number, SMS; if you connected Telegram, they can come there too.

You are responsible for ensuring that your registered email address and mobile phone number remain accurate and active. Official course and payment notices sent to your registered contact details are deemed received.

Course-related messages are part of the service and you cannot opt out of them while enrolled. Anything promotional — offers for other courses — we send only if you agreed to it, and you can withdraw that agreement at any time from your profile or by writing to hallo@mennto.is.

9. The mobile app

The menntō app is currently in beta and is distributed for testing. It may contain faults, may be interrupted, and its features may change. The platform on the website remains the complete service; the app is provided in addition to it. Nothing you do in the app changes your rights under section 4.

10. Availability, maintenance, and force majeure

We aim to keep the platform available, but we do not promise uninterrupted service. We carry out maintenance, sometimes at short notice when security requires it. We may change, add or withdraw features. If a change materially reduces what you paid for, tell us and we will find a solution.

We are not liable for service interruptions caused by events beyond our reasonable control (force majeure / óviðráðanleg atvik), including natural disasters, severe weather, volcanic activity, power grid outages, telecommunications or cloud hosting carrier failures, labor strikes, or cyberattacks that could not have been prevented by standard industry security measures.

11. Ending the agreement

You may stop using the platform at any time and ask us to close your account at hallo@mennto.is. We keep what the law obliges us to keep — see section 6 of the Privacy Policy — and delete the rest.

We may end your access if you seriously breach these terms, or if your enrolment ends. Where enrolment is terminated for serious breach, you forfeit any right to fee refunds or course certificates.

12. Liability

We are liable for direct damage we cause by intent (ásetningur) or gross negligence (stórfellt gáleysi), and for anything Icelandic law does not allow us to limit. We are not liable for loss of data you did not keep a copy of, for third-party interruptions outside our control, or for indirect loss (óbeint tjón, such as lost income or missed employment opportunities).

Our total aggregate liability to you for any claim arising out of your course or platform use shall not exceed the total course fees actually paid by you for the relevant term. Nothing here limits your statutory rights as a consumer under the Consumer Contracts Act No. 16/2016 (lög um neytendasamninga) or other mandatory rules of consumer law.

13. Law and disputes

Icelandic law applies. If we cannot resolve a disagreement between us, it goes before Héraðsdómur Reykjavíkur. As a consumer you may also seek dispute resolution through courts or, to the extent its statutory jurisdiction covers contracts of this type, the Complaints Board for Goods and Services (Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa) under Act No. 81/2019.

14. Changes to these terms

We keep these terms under version control; each version carries a date and a revision number. When we change something that affects you, the platform asks you to accept the new version the next time you sign in, and records which version you accepted and when. If you do not accept a new version you can no longer use the platform, and we will settle any outstanding course arrangements with you directly.

15. Contact

Ragnar Snær ehf., kt. 480120-1590 Sóltún 26, 105 Reykjavík, Iceland hallo@mennto.is

Умови використання

Оновлено 2026-08-19

Стисло

Умови користування навчальним середовищем app.mennto.is, вебсайтом mennto.is та додатком menntō.

  • Оператор: Ragnar Snær ehf., kt. 480120-1590, Sóltún 26, 105 Reykjavík (hallo@mennto.is).
  • Вік: Від 16 років (для неповнолітніх 16–17 років потрібна згода батьків або опікуна).
  • Відмова та повернення коштів: Законне право відмови протягом 14 днів; 100% повернення до початку курсу.
  • Юрисдикція: Законодавство Ісландії, Окружний суд Рейк'явіка.

1. Хто ми

Навчальна платформа app.mennto.is, вебсайт mennto.is та мобільний додаток menntō експлуатуються компанією Ragnar Snær ehf., kt. 480120-1590, Sóltún 26, 105 Reykjavík, Ісландія, постачальником освітніх послуг («menntō», «ми», «нас»).

Контактна адреса: hallo@mennto.is.

2. Предмет цих умов

Ці умови регулюють використання вами навчальної платформи menntō. Приймаючи їх під час входу в систему — та користуючись платформою — ви погоджуєтеся дотримуватися їх. Разом із Політикою конфіденційності та описом курсу, отриманим під час реєстрації, вони складають повний договір між нами.

Якщо ви не погоджуєтеся з цими умовами, ви не можете користуватися платформою; будь ласка, повідомте нас про це, щоб ми могли знайти інший формат вашої участі у навчанні або скасувати реєстрацію.

Ці умови опубліковані ісландською, англійською та українською мовами. У разі розбіжностей між версіями переважну силу має ісландський текст.

3. Хто може користуватися платформою

Для реєстрації та навчання на платформі студентам має виповнитися щонайменше 16 років. Якщо студенту 16 або 17 років (неповнолітній студент / ólögráða nemandi), батьки або законний опікун (forráðamaður) повинні підтвердити реєстрацію, погодитися з цими умовами та взяти на себе платіжні зобов'язання від імені студента.

Обліковий запис є суворо персональним: заборонено передавати свої облікові дані іншим особам або дозволяти будь-кому користуватися вашим акаунтом. Ви несете повну відповідальність за всі дії, здійснені під вашим обліковим записом, доки не повідомите нас про несанкціонований доступ.

Вхід можливий за допомогою пароля, ключа доступу (passkey), акаунта Google або Telegram. Який би спосіб ви не обрали, зберігайте його в безпеці. Негайно повідомте нас за адресою hallo@mennto.is, якщо у вас виникла підозра про компрометацію облікових даних.

4. Зарахування, вартість, відмова та повернення коштів

Навчання організовується за однією з чотирьох моделей залежно від способу реєстрації:

  • Пряма індивідуальна реєстрація (із відшкодуванням через фонди). Вартість навчання публікується на нашому вебсайті або у формах реєстрації. Електронний рахунок (krafa í netbanka) виставляється через бухгалтерську систему Payday з терміном оплати 14 днів або до першого запланованого заняття. Освітні послуги звільнені від сплати ПДВ згідно з п. 3 ч. 3 ст. 2 Закону Ісландії про ПДВ № 50/1988 (lög um virðisaukaskatt). Рахунки та квитанції деталізовані та відповідають вимогам фондів професійного навчання профспілок (starfsmenntasjóðir stéttarfélaga), Директорату праці (Vinnumálastofnun / VMST), фондів професійної реабілітації (VIRK Starfsendurhæfingarsjóður) та муніципальних грантів. Право на компенсацію: Право на отримання відшкодування чи гранту залежить виключно від вашого особистого членства у профспілці, накопичених фондових прав (áunnin réttindi) або статусу у відповідній установі (такій як профспілка, VMST чи VIRK); ми не перевіряємо і не можемо гарантувати затвердження виплат, і кожен студент несе особисту відповідальність за перевірку свого права на компенсацію безпосередньо у своєму фонді до або під час реєстрації.
  • Пряме інституційне фінансування (Vinnumálastofnun, VIRK, державні установи). Якщо ваше навчання фінансується безпосередньо Директоратом праці (Vinnumálastofnun), фондом VIRK або іншою державною установою за договором, розрахунки здійснюються безпосередньо між цією організацією та Ragnar Snær ehf. Студенту не виставляється особистий рахунок за умови виконання вимог установи щодо відвідуваності та успішності.
  • Партнерські освітні центри та центри неперервної освіти (fræðsluaðilar og símenntunarmiðstöðvar). Якщо ви берете участь через партнерський навчальний заклад чи центр пожиттєвої освіти, реєстрація та фінансові умови регулюються вашим договором із цим закладом. Партнерська установа надає нам списки студентів, а ми забезпечуємо викладання на платформі.
  • Корпоративне навчання для співробітників (vinnustaðanám / fyrirtækjanámskeið). Якщо роботодавець замовляє навчання для своїх працівників, компанія надає список учасників і оплачує рахунок безпосередньо компанії Ragnar Snær ehf. Із працівників плата не стягується.

Скасування та повернення коштів (для прямої індивідуальної реєстрації):

  • Встановлене законом 14-денне право на відмову від договору: Відповідно до розділу VI Закону Ісландії про споживчі договори № 16/2016 (lög um neytendasamninga) ви маєте 14 днів із дня реєстрації на відмову від договору на навчання шляхом надсилання письмового повідомлення на hallo@mennto.is.
  • До початку курсу: У разі відмови від участі до першого запланованого заняття сплачена вартість навчання повертається у повному обсязі (100%).
  • Після початку занять у межах 14-денного терміну: Якщо за вашим прямим запитом доступ до матеріалів або онлайн-уроки розпочалися до спливу 14 днів, і ви реалізуєте право на відмову протягом цього терміну, ви сплачуєте частку від загальної ціни, пропорційну фактично проведеним заняттям, а залишок повертається (ч. 1 ст. 23 Закону № 16/2016). Сама лише реєстрація таким запитом не вважається: якщо ви не просили окремо розпочати заняття в межах терміну, ви не несете жодних витрат за ці заняття, і повернення є повним (п. «b» ч. 2 тієї ж статті).
  • Порядок повернення: Ми повертаємо кошти без невиправданої затримки і не пізніше ніж за 14 днів після отримання вашого повідомлення про відмову, тим самим платіжним засобом, яким ви скористалися, якщо ви прямо не погодилися на інше (ст. 21 Закону № 16/2016).
  • Після закінчення 14-денного терміну: Після спливу встановленого законом 14-денного строку вартість навчання не повертається. У разі неможливості продовжити навчання через хворобу або серйозні непередбачувані обставини, підтверджені медичною довідкою, ми можемо запропонувати збереження балансу або перенесення на наступний семестр.
  • Скасування курсу школою: Якщо курс скасовано з ініціативи Ragnar Snær ehf. (наприклад, через недостатню кількість слухачів), усі сплачені кошти повертаються у повному обсязі протягом 14 днів.

Умови оплати та прострочення: Електронні банківські вимоги (kröfur) підлягають сплаті у вказаний термін. Якщо рахунок не оплачено до настання кінцевої дати (eindagi), доступ до курсу та платформи може бути призупинено до повного погашення. У разі прострочення можуть нараховуватися встановлені законом відсотки за прострочення (dráttarvextir) відповідно до Закону Ісландії № 38/2001 та витрати на стягнення згідно із Законом про стягнення заборгованості № 95/2008 (innheimtulög).

Відмова третьої сторони в оплаті: Якщо студент реєструється з розрахунком на те, що рахунок оплатить зовнішня організація, фонд або роботодавець, студент зобов'язаний самостійно перевірити й отримати підтвердження фінансування до початку занять. Якщо організація відмовляє в оплаті з будь-якої причини (наприклад, через недостатню відвідуваність або невиконання правил фонду), студент несе повну особисту відповідальність перед Ragnar Snær ehf. за повну оплату вартості курсу.

Сертифікати про закінчення курсу: Сертифікати (námslokavottorð) видаються за умови виконання академічних вимог та критеріїв відвідуваності (зазвичай не менше 75% активної участі в онлайн-уроках та виконання обов'язкових завдань) і за умови повної оплати вартості навчання.

5. Правила користування платформою

Платформа призначена виключно для вашого власного навчання. Ви несете відповідальність за наявність сумісного пристрою, справного аудіо- та відеообладнання (мікрофона та камери для інтерактивних уроків; наявність камери не зобов'язує вас вмикати її під час запису заняття — див. розділ 6) та стабільного інтернет-з'єднання, необхідного для участі в заняттях.

Вам заборонено:

  • поширювати, публікувати, транслювати або перепродавати навчальні матеріали — див. розділ 6,
  • записувати, завантажувати для розповсюдження, поширювати чи публікувати відеозаписи уроків або взаємодію з іншими студентами,
  • завантажувати, вводити або згодовувати навчальні матеріали, конспекти чи записи уроків у публічні сторонні моделі штучного інтелекту або автоматизовані парсери (скрейпери),
  • завантажувати незаконні матеріали або матеріали, на які у вас немає прав,
  • переслідувати, погрожувати чи образливо ставитися до інших студентів або викладачів,
  • намагатися зламати, перевантажити систему або отримати несанкціонований доступ до чужих даних,
  • використовувати автоматизовані інструменти для масового завантаження вмісту платформи,
  • видавати себе за іншу особу.

У разі порушення цих правил ми можемо обмежити ваш доступ. За незначні порушення спочатку надається попередження; у разі серйозних порушень — зокрема цькування студентів, порушення авторських прав, несанкціонованого поширення записів уроків чи академічного обману — ми маємо право негайно припинити доступ та виключити студента з курсу. У разі відрахування за серйозні порушення сплачені кошти не повертаються, а сертифікати не видаються.

6. Навчальні матеріали, записи уроків та студентські роботи

Наші матеріали. Навчальні матеріали — тексти, аудіо- та відеозаписи, вправи, зображення, програмний код та конспекти занять — є власністю компанії Ragnar Snær ehf. (що діє під брендом menntō) або ліцензіарів. Ви отримуєте персональну, невідчужувану та відкличну ліцензію на доступ і використання матеріалів виключно для особистого навчання під час проходження курсу. Заборонено перевидавати, продавати, транслювати, викладати в мережу або передавати їх третім особам. Заборонено обробляти матеріали курсу через публічні сервіси ШІ.

Записи уроків і конфіденційність одногрупників. Живі онлайн-уроки можуть записуватися, щоб студенти відповідної навчальної групи могли повторити матеріал. Записи фіксують голоси, відео, запитання та активність викладачів і одногрупників.

  • Ви можете бути присутніми на занятті, що записується, з вимкненою камерою та мікрофоном і ставити запитання в чаті. Ваше оцінювання не залежить від появи в записі, і ви можете заперечити проти запису, що зафіксував вас, згідно з розділом 3 Політики конфіденційності.
  • Ви можете переглядати записи виключно для особистого навчання в межах свого курсу.
  • Категорично заборонено завантажувати для розповсюдження, записувати з екрана, пересилати чи публікувати записи уроків (повністю або фрагментами на YouTube, TikTok, Telegram, у соцмережах чи будь-де ще).
  • Несанкціоноване поширення записів є грубим порушенням закону Ісландії про авторське право (höfundalög nr. 73/1972) і прямим порушенням законного права ваших одногрупників на приватність та захист образу (lög nr. 90/2018 та кримінального кодексу Ісландії almenn hegningarlög nr. 19/1940).
  • Будь-яке порушення тягне за собою негайне відрахування без повернення коштів, цивільно-правову відповідальність за завдану шкоду та можливе звернення до правоохоронних органів.

Ваші роботи. Те, що ви пишете та здаєте — завдання, дописи на форумі, особисті записи — залишається вашим. Ви надаєте нам дозвіл зберігати це, показувати викладачам та іншим студентам у спільних навчальних активностях, і зберігати як частину навчальної історії відповідно до розділу 6 Політики конфіденційності. Ми ніколи не використовуємо роботи студентів у рекламі без вашої попередньої згоди.

7. Функції штучного інтелекту та академічна доброчесність

Платформа підтримує інтегровану підсистему штучного інтелекту для викладачів (провайдери Claude від Anthropic PBC та Gemini від Google), і ці інструменти доступні виключно викладачам. Студенти не мають доступу до функцій ШІ у своєму інтерфейсі, і нічого з того, що ви пишете на платформі, не передається провайдерам ШІ — див. розділ 4 Політики конфіденційності.

Використання ШІ під час виконання завдань: Усі здані навчальні роботи мають бути результатом вашої власної творчої праці. Студенти зобов'язані суворо дотримуватися вказівок викладача щодо того, чи дозволено застосовувати ШІ в конкретному завданні. Якщо використання ШІ дозволено як допоміжний інструмент, студент зобов'язаний чітко задекларувати це та вказати джерело (heimildaskráning). Подання згенерованого ШІ тексту або перекладу під виглядом власної роботи є академічним порушенням і тягне за собою дисциплінарні заходи згідно з правилами школи.

8. Повідомлення та сповіщення

Ми надсилаємо службові повідомлення, необхідні для навчального процесу: зміни в розкладі, нагадування, оцінки, рахунки та квитанції про оплату, повідомлення від викладачів. Вони надходять електронною поштою, через внутрішню систему повідомлень, push-сповіщеннями та через SMS на вказаний номер телефону; якщо ви підключили Telegram, вони також можуть надходити туди.

Ви несете відповідальність за актуальність та працездатність зазначеної електронної пошти та номера телефону. Офіційні сповіщення та рахунки, надіслані на ваші контактні дані, вважаються належним чином доставленими.

Службові повідомлення є невіддільною частиною послуги, і від них не можна відмовитися під час навчання. Маркетингові пропозиції про інші курси надсилаються лише за вашою згодою, яку можна відкликати в будь-який момент у профілі або написавши на hallo@mennto.is.

9. Мобільний додаток

Мобільний додаток menntō для смартфонів перебуває на стадії бета-тестування. Він може містити помилки, робота може тимчасово перериватися, а функціонал змінюватися. Вебплатформа на app.mennto.is залишається основним сервісом; додаток надається як зручне доповнення. Користування додатком не змінює ваших прав згідно з розділом 4.

10. Доступність, технічне обслуговування та форс-мажор

Ми прагнемо забезпечувати постійну роботу платформи, але не гарантуємо безперебійного сервісу. Ми проводимо технічні роботи, іноді з коротким попередженням з міркувань безпеки. Ми можемо оновлювати, додавати або вилучати окремі функції. Якщо зміна суттєво зменшує оплачений вами обсяг послуг, повідомте нас, і ми знайдемо рішення.

Ми не несемо відповідальності за перебої в роботі, спричинені обставинами непереборної сили (force majeure), включаючи стихійні лиха, несприятливі погодні умови, виверження вулканів і сейсмічну активність, аварії в електромережах, збої магістральних провайдерів зв'язку чи хмарного хостингу, страйки або кібератаки, яким неможливо було запобігти стандартними засобами захисту.

11. Припинення дії договору

Ви можете припинити користуватися платформою в будь-який момент і надіслати запит на закриття облікового запису на hallo@mennto.is. Ми зберігаємо те, що вимагає законодавство — див. розділ 6 Політики конфіденційності — а решту даних видаляємо.

Ми можемо припинити ваш доступ у разі серйозного порушення цих умов або після завершення вашого навчання. У разі відрахування за серйозні порушення право на повернення коштів чи отримання сертифікатів анулюється.

12. Відповідальність та її обмеження

Ми несемо відповідальність за прямі збитки, завдані внаслідок нашого умислу (ásetningur) або грубої необережності (stórfellt gáleysi), а також за іншу шкоду, обмеження якої заборонено законодавством Ісландії. Ми не несемо відповідальності за втрату даних, копії яких ви не зберегли, за перебої з боку третіх сторін поза нашим контролем, а також за непрямі та побічні збитки (óbeint tjón, такі як втрачений дохід чи втрачені кар'єрні можливості).

Наша загальна сукупна відповідальність перед вами за будь-якими претензіями не може перевищувати суму вартості навчання, фактично сплачену вами за відповідний курс. Жодне положення цих умов не обмежує ваших прав як споживача згідно із Законом Ісландії про споживчі договори № 16/2016 (lög um neytendasamninga) або іншими імперативними нормами споживчого права.

13. Законодавство та вирішення спорів

Застосовується законодавство Ісландії. Усі спори, які не вдалося вирішити шляхом переговорів, передаються на розгляд до Окружного суду Рейк'явіка (Héraðsdómur Reykjavíkur). Як споживач ви також маєте право звернутися за захистом своїх прав до суду або, тією мірою, якою це охоплюється її компетенцією щодо договорів такого типу, до Комісії з розгляду споживчих спорів Ісландії (Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa) відповідно до Закону № 81/2019.

14. Зміни до цих умов

Ці умови перебувають під контролем версій; кожна версія має дату та номер редакції. У разі внесення суттєвих змін платформа запропонує вам прийняти нову редакцію під час наступного входу в систему, фіксуючи дату й час згоди. Якщо ви не приймаєте нову версію, подальше користування платформою стає неможливим, і ми врегулюємо взаємовідносини з вами напряму.

15. Контакти

Ragnar Snær ehf., kt. 480120-1590 Sóltún 26, 105 Reykjavík, Iceland hallo@mennto.is